Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. september 2020 13:20
Ívan Guðjón Baldursson
Wolves að kaupa Fabio Silva frá Porto - Kostar 40 milljónir
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano greinir frá því að Wolves er að ganga frá kaupum á Fabio Silva, 18 ára sóknarmanni Porto, fyrir rúmlega 40 milljónir evra.

Silva er gífurlega efnilegur og skoraði þrisvar í átján leikjum með Porto á síðustu leiktíð. Hann er lykilmaður í yngri landsliðum Portúgala og hefur skorað 17 mörk í 37 leikjum.

Silva gerði góða hluti í Meistaradeild unglingaliða á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði fimm mörk og lagði upp fjögur í 9 leikjum.

Wolves er sagt greiða 40 milljónir evra auk árangurstengdra bónusgreiðslna.
Athugasemdir
banner
banner
banner