banner
   sun 05. september 2021 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Albert í banni gegn Þjóðverjum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson verður í leikbanni þegar Ísland mætir Þýskalandi í undankeppni HM á miðvikudag.

Albert fékk sitt annað gula spjald í undankeppninni eftir viðskipti við fyrirliða Norður-Makedóníu, Stefan Ristovski, á 57. mínútu.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Norður-Makedónía

„Albert og Ristovski að böggast eitthvað í hvor öðrum við hliðarlínuna og fá báðir spjald," segir í textalýsingu frá leiknum.

Fjórir aðrir eru á hættusvæði fyrir miðvikudaginn. Það eru þeir Jón Dagur Þorsteinsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Ari Freyr Skúlason og Kári Árnason.

Kári, Jón Dagur og Ísak Bergmann eru inn á sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner
banner