„Mér fannst við sterkari aðilinn svona heilt yfir, þótt að þær lágu kannski meira á okkur í seinni hálfleik, en við vorum náttúrulega einum færri. Mér fannst við vera að pressa þær vel í fyrri hálfleik, leikplanið var að virka, fengum á okkur ódýr mörk sem hefði alveg verið hægt að koma í veg fyrir. Ég er svona 90% viss um að annað markið þeirra hafi verið rangstaða, en ég þori ekki að fara með það strax, en þannig var tilfinningin. Svo bara mjög ódýrt víti sem við fáum á okkur, þannig þetta er bara smá svekkjandi," sagði Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, eftir 3-3 jafntefli gegn Stjörnunni í dag.
Lestu um leikinn: Stjarnan 3 - 3 Breiðablik
Blikar fengu á sig víti á 62. mínútu þegar boltinn virtist hafa farið í höndina á Karítas Tómasdóttur.
„Hann vill meina það að hún hafi verið að taka mark af, en ég meina þetta fer í hana og hún er með hendina niðri, ég veit ekki hvað annað hún hafi átt að gera, en svona eru víst reglurnar, já bara pirrandi."
Mark var dæmt af Blikum á 17. mínútu þegar Birta Georgsdóttir var dæmd rangstæð.
„Ég veit það ekki, kannski var það rétt. Mér fannst bara margt í þessu vera rangt. Mér fannst þeir bara ekki vera með stjórn á leiknum en ég held að það sé best að ég bara segi sem minnst."
Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan, þar talar Ásta Eir um leikinn sem er framundan hjá þeim í Meistaradeild Evrópu á fimmtudaginn.
Athugasemdir