Andri Lucas Guðjohnsen og Brynjar Ingi Bjarnason skoruðu mörk Íslands í jafnteflinu gegn Norður-Makedóníu í dag.
Þetta eru tveir efnilegir leikmenn með litla landsliðsreynslu. Brynjar var maður leiksins hér á Fótbolta.net.
„Brynjar er búinn að taka ótrúlega stór skref á stuttum tíma. Hann er ekki sá eini," sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson á fréttamannafundi.
„Þið vitið það allir að við erum að reyna að taka rétt skref með alla þessa drengi. Það er stundum svolítið erfitt. Brynjar Ingi er búinn að byrja tvo leiki og hefur gert það mjög vel, þó það sé fullt af hlutum sem við getum lagað. Hann gerði flest mistök í dag í þessum fjórum leikjum sem hann hefur spilað. Hann gerði líka rosalega marga góða hluti. Það er þetta sem ég og Eiður erum að biðja þá um að gera; þessi mistök svo þeir geti lært af þeim."
„Þessir ungu eru þarna. Til dæmis Þórir Jóhann, sem kemur inn á. Hann er búinn að vera í atvinnumennsku í einhverjar tvær vikur og hann er búinn að taka skref. Þeir eru á viðkvæmum á stað og við erum í sameiningu við Davíð Snorra og U21 landsliðið að reyna að taka réttu skrefin."
Fyrsta markið hans Andra
Andri Lucas skoraði sitt fyrsta landsliðsmark. Á hann ekki bara að byrja gegn Þýskalandi?
„Þetta var æðislegt augnablik og frábært mark. Nú kem ég aftur að sem ég var að segja núna; það eru ákveðin skref. Það sem er að gerast með Andra Lucas er í raun alveg eftir bókinni. Hann kemur inn á í fyrsta leik og í dag. Það sem er ekki eftir bókinni er að við erum með eitt stig en ekki sex stig."
„Við verðum að taka þetta á réttum tíma og undir réttum kringumstæðum. Við vitum hversu frábærir leikmenn Andri Fannar og Ísak Bergmann eru. Við erum að henda þeim í djúpu laugina tvo leiki í röð. Það er erfitt en þeir læra á því."
Landsliðsþjálfarinn segir að stigið í dag geri mikið fyrir liðið, og sérstaklega ungu strákana fyrir leikinn gegn Þýskalandi á miðvikudag.
Athugasemdir