Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. september 2021 13:30
Aksentije Milisic
Chicharito: Var tilbúinn í að deyja fyrir Ferguson á vellinum
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, betur þekktur sem Chicharito, rifjaði upp kynni sín við Sir Alex Ferguson en þeir unnu saman hjá Manchester United.

United keypti Chicharito árið 2010 og hann var ekki lengi að slá í gegn hjá stuðningsmönnum liðsins.

Chicharito er 33 ára í dag en hann spilar með LA Galaxy í MLS deildinni og þar hefur hann verið að standa sig vel og skora tölvert af mörkum.

„Hvernig hann kom fram fram við fólk var alveg til fyrirmyndar. Hvernig hann kom fram við fjölskyldu mína, ég hugsaði, ég mun deyja fyrir þennan mann á vellinum, það er klárt," sagði Chicharito um Ferguson.

„Ef hann kemur svona fram við fjölskyldu mína ég mun æla eftir hvern einasta leik ef það hjálpar okkur í baráttunni um titla. Hann var ótrúlegur maður. Það var erfitt að trúa því!"

Chicharito vann ensku úrvalsdeildina í tvígang með Ferguson og Manchester United.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner