Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. september 2021 06:00
Aksentije Milisic
Fyrsta landsliðsmark Martial í fimm ár
Mynd: Getty Images
Úkraína og Frakkland mættust í undankeppni HM í gær.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Anthony Martial, leikmaður Manchester United, jafnaði leikinn í upphafi síðari hálfleiks.

Það sem er áhugavert við þetta mark hjá Martial er að þetta er hans fyrsta landsliðsmark í heil fimm ár. Hann skoraði síðast í æfingaleik gegn Ítalíu í september mánuði árið 2016.

Martial hefur ekki alltaf verið í landsliðshóp Frakklands á undanförnum árum og spurning hvort honum takist að finna smá stöðugleika nú þegar hann er loksins kominn á blað aftur.


Athugasemdir
banner
banner
banner