Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   sun 05. september 2021 15:32
Arnar Laufdal Arnarsson
Gaui Þórðar: Eins og menn bogni og brotni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Þórðarson þjálfari Víkinga frá Ólafsvík var þungur á brún eftir 5-2 tap gegn Þrótturum í 20. umferð Lengjudeildar karla.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 -  2 Víkingur Ó.

"Vonbrigði eftir að hafa verið inn í leiknum í fyrri hálfleik, vonbrigði eftir að við unnum okkur inn í leikinn eftir að hafa gefið mark eftir tvær mínútur, við áttum ágætis kafla í fyrri hálfleik og skoruðum tvö mörk og það leit alls ekki út fyrir að þetta myndi fara með þessum hætti í byrjun seinni hálfleiks. Svo eins og í mótlætinu þegar við við fáum á okkur þriðja markið þá er eins og menn bogni og brotni" Sagði Guðjón í viðtali eftir leik.

Fannst Guðjóni 5-2 sýna rétta mynd af leiknum?

"Mér fannst það ekki gefa rétta mynd af heildarleiknum en það er ekki spurt að því þegar þú færð á þig mörk þá eru það þau sem telja, það geta verið sex tilraunir og fimm mörk og það var útkoman í dag en þeir áttu reyndar fleiri tilraunir og við vorum oft að hjálpa þeim að skora"

Hvað gerðist í seinni hálfleik?

"Menn hættu að gera hlutina og héldu að þetta myndi koma af sjálfu sér, gáfu frá sér frumkvæðið og það auðveldlega og spiluðu gegn sjálfum sér og Þróttararnir gengu á lagið og sáu um leið þegar menn fóru að hika hjá okkur þá gengu þeir á lagið"
Athugasemdir
banner
banner
banner