Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 05. september 2021 05:55
Aksentije Milisic
Ísland í dag - Þróttur þarf sigur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það fara fram tveir leikir í íslenska boltanum í dag.

Í Pepsi Max deild kvenna fær Stjarnan lið Breiðabliks í heimsókn en þetta er síðasti leikurinn í sautjándu umferðinni.

Breiðablik er í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á undan Þrótti. Stjarnan er í fimmta sæti deildarinnar með 23 stig.

Þá er einn leikur í Lengjudeild karla í dag en þar mætast tvö neðstu lið deildarinnar, Þróttur Reykjavík og Víkingur Ólafsvík. Þróttur á enn veika von á því að halda sæti sínu í deildinni á meðan Víkingur er fallið.

sunnudagur 5. september

Pepsi-Max deild kvenna
12:00 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)

Lengjudeild karla
13:00 Þróttur R.-Víkingur Ó. (Eimskipsvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner