Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 05. september 2021 11:00
Aksentije Milisic
Leikmenn ÍR mættu til leiks í bolum Bleika Fílsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR og Haukar áttust við í 2. deild karla í gær en spilað var í 20. umferð deildarinnar.

Haukar unnu leikinn örugglega með fjórum mörkum gegn engu. Eins og fram kom í gær mættu Haukar með Fokk ofbeldi húfur í leikinn.

Heimamenn í ÍR gengu inn í bolum Bleika Fílsins og þá var fáni samtakanna einnig uppi. Bleiki Fíllinn er átak gegn kynferðisofbeldi.

Mikil umræða hefur verið uppi á síðustu dögum um kynbundið ofbeldi að hálfu landsliðsmanna Íslands.

Myndir af ÍR vellinum má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner