Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. september 2021 17:34
Brynjar Ingi Erluson
Onana sagður á leið til Inter
Andre Onana
Andre Onana
Mynd: Getty Images
Andre Onana, markvörður Ajax í Hollandi, mun ganga til liðs við Inter í sumar en það er Corriere dello Sport sem greinir frá þessu.

Onana, sem er 25 ára gamall, hefur ekkert spilað með Ajax eftir að hann var dæmdur í bann í febrúar fyrir notkun á ólöglegum lyfjum.

Hann var fyrst dæmdur í tólf mánaða bann en það var minnkað niður í níu mánuði af íþróttadómstólnum í Sviss.

Onana getur því byrjað að spila í nóvember en hann mun að öllum líkindum yfirgefa Ajax eftir tímabilið.

Kamerúnski markvörðurinn verður samningslaus næsta sumar og greinir Corriere dello Sport frá því hann semji við Inter.

Samningur Samir Handanovic rennur út næsta sumar og er því Inter í leit að markverði í stað hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner