Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. september 2021 13:10
Aksentije Milisic
Ribery í læknisskoðun hjá nýliðunum á morgun
Mynd: Getty Images
Franck Ribery mun mæta til Salerno á morgun og gangast undir læknisskoðun hjá Salernitana, áður en hann krotar undir samning.

Salernitana eru nýliðar í Serie A deildinni á Ítalíu en liðið steinlá fyrir Roma í síðustu umferð deildarinnar.

Hinn 38 ára gamli Ribery spilaði með Fiorentina á síðustu tveimur árum en hann mun mæta í læknisskoðun hjá Salernitana í fyrramálið.

Ribery er þessa daganna staddur í Monaco með fjölskyldu sinni en hann mun fljúga til Ítalíu á morgun og ef hann stenst læknisskoðunina þá verður hann nýr leikmaður Salernitana.

Hann mun skrifa undir eins árs samning með möguleika um eins árs framlengingu til viðbótar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner