Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 05. september 2021 11:40
Aksentije Milisic
Stuðningsmenn Englands mæta með borða til stuðnings Saka, Rashford og Sancho
Mynd: EPA
Stuðningsmenn Englands munu mæta með nýjan borða á Wembley í dag til stuðnings Bukayo Saka, Marcus Rashford og Jadon Sancho.

England mætir Andorra í dag í undankeppni HM og þar munu stuðningsmennirnir frumsýna nýjan borða.

Saka, Rashford og Sancho klúðruðu allir vítaspyrnu í úrslitaleiknum gegn Ítalíu á EM í sumar og urðu í kjölfarið fyrir miklum kynþáttafordómum.

Þá urðu leikmenn Englands einnig fyrir fordómum í leiknum gegn Ungverjalandi fyrr í vikunni. Í leiknum í dag verður Saka eini leikmaðurinn af þessum þremur sem er klár í slaginn.

Marcus Rashford er að jafna sig eftir aðgerð á öxl og þá þurfti Sancho að yfirgefa enska hópinn á dögunum vegna smávægilegra meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner