Hér að neðan má sjá brot af fótboltaumræðunni á samskiptamiðlinum Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.
Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
Ég hef ekki sèð íslenskan hafsent með sömu eiginleika og Brynjar Ingi, þvílíkur spilari.
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) September 5, 2021
“Hann er bara valinn að því hann er Gudj..” Þegiðu!!! Get in GUDJOHNSEN!!
— Rikki G (@RikkiGje) September 5, 2021
Gaman að sjá alla sultusérfræðingana hrauna yfir landsliðið fyrstu 60 min, fótbolti er 90 mín hefur alltaf verið!!! Hafa bara Albert í holunni, Jón Dag á kantinum og Gudjohnsen frammi TAKK.
— Sigurđur Gìsli (@SigurdurGisli) September 5, 2021
Brynjar maður leiksins. Það er breytingar í gangi á liðinu, nýr mannskapur að koma inn. Þetta mun taka tíma en margir spennandi ungir strákar að stiga sín fyrstu skref. Andri gríðarlegt efni sem á eftir að skora mörg mörk fyrir Ísland.
— saevar petursson (@saevarp) September 5, 2021
Jákvæði punkturinn við þennan leik og síðasta er þó þessir öflugu, ungu strákar. Næstu ár verða kannski mögur en vonandi er ný gullkynslóð á leiðinni.
— Alexander Freyr (@alexander_freyr) September 5, 2021
Jáááááááá! #fyririsland pic.twitter.com/ZL8c5Tk0Wp
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 5, 2021
Jæja, getum við núna hætt að spila Alberti á kantinum og vinsamlegast notað hann miðsvæðis, frammi eða í holunni Takk!
— Kristján Daði (@KristjanDadi) September 5, 2021
Augnablik til að muna eftir #Guðjohnsen
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) September 5, 2021
Þetta er með því lélegasta sem ég hef séð, guð minn góður #fotboltinet
— Guðmundur Ásgeirsson (@gummi_aa) September 5, 2021
Lars lagði upp ákveðin grunngildi sem Heimir masteraði. Þannig varð Ísland gott í fótbolta. Gildin voru m.a. að sækja á styrkleikum okkar, varnarskipulag og það átti að vera erfitt að spila gegn Íslandi.Ekki fallegur fótbolti en árangursríkur.
— Jóhann Már Helgason (@Joimar) September 5, 2021
Við þurfum þessi gildi aftur.🇮🇸🇲🇰
Burt með Arnar Viðars. Eins og einn vinur minn sagði, hættum þessum afsökunum og spilum fótbolta. Þetta er ekki Fótbolti, þetta er drasl.
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) September 5, 2021
Er Spaugstofan að spila þennan landsleik?
— Ragnar Traustason (@Raggerano) September 5, 2021
sjokkerandi frammistaða, eins og enginn hafi hugmynd um eitthvað leikplan, algjört ráðaleysi,ótrúlega lélegt. #fotbolti
— Teitur Örlygsson (@teitur11) September 5, 2021
Sú frammistaðan
— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) September 5, 2021
Við erum ömurlegir. Dómarinn er ömurlegur. Völlurinn er ömurlegur.
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) September 5, 2021
Þetta er allt ömurlegt maður.
Lélegustu 45 mínútur hjá íslensku landsliði sem ég man eftir frá sirka 2006. Hreinasta hörmung.
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) September 5, 2021
4-1-4-1 er ekki alveg að virka varnarlega, plássið framan öftustu 4 er alltof stórt. Birkir og Ísak engan veginn að finna sig í varnarleiknum.
— Nonni coach (@nonnidk) September 5, 2021
Fokking svæðisvörn - Hættið þessari vitleysu #fotboltinet #maðurámann
— Jakob Leó Bjarnason (@jakoblb17) September 5, 2021
Djöfull var þetta léleg varnarvinna í þessu horni #fotboltinet
— Matti Matt (@mattimatt) September 5, 2021
Birkir Bjarnason 100 leikir. Jaxl sem hefur gefið mikið af sér fyrir íslenska liðið. Einstakur áfangi.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) September 5, 2021
100!!! 😍😍😍 litli frændi minn. #fyrirmynd pic.twitter.com/bxF1jJHeb6
— gulligull1 (@GGunnleifsson) September 5, 2021
Ég heyri oft meira þegar ég er að taka myndir á fótboltaleikjum. Núna er ég á Þróttur - Víkingur Ólafsvík. Laugi að kvarta í Agli dómara, vildi fá dæmda hendi í marki Víkinga. Egill segir bara nei og sestu sem pirraði Lauga mikið: „Sestu? Hvað heldurðu að ég sé hundurinn þinn?"
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) September 5, 2021