Arnar Þór Viðarsson greindi frá því á fréttamannafundi í gær að Jóhann Berg Guðmundsson væri tæpur, hann væri enn að ná sér eftir leikinn gegn Rúmeníu á fimmtudaginn.
Jóhann Berg var svo utan hóps í leiknum gegn Norður-Makedóníu í dag. Arnar var spurður eftir leikinn hvort Jóhann yrði með gegn Þýskalandi á miðvikudaginn?
Jóhann Berg var svo utan hóps í leiknum gegn Norður-Makedóníu í dag. Arnar var spurður eftir leikinn hvort Jóhann yrði með gegn Þýskalandi á miðvikudaginn?
„Ég vona að við getum stillt okkar sterkustu mönnum sem eru í hóp akkúrat núna, þeim ferskustu núna. Það er enn von, ef við vinnum Þjóðverja erum við kannski inni í riðlinum," sagði Arnar.
Leikur Íslands og Þýskalands verður klukkan 18:45 á miðvikudaginn á Laugardalsvelli.
Athugasemdir