Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. október 2021 19:00
Hafliði Breiðfjörð
Chanté Sandiford í landsliðshópi Gvæjana
Chante í leik með Stjörnunni í sumar.
Chante í leik með Stjörnunni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Chanté Sandiford markvörður Stjörnunnar í Pepsi Max deild kvenna hefur verið valin í landsliðshóp Gvæjana (Guyana) í landsleiki gegn Puerto Rico 18. -24. október.

Leikirnir eru undirbúnings leikir fyrir upphaf riðlakeppninnar fyrir HM sem verða leiknir 22. - 30. nóvember.

Chanté lék 8 leiki með Stjörnunni í sumar en hún meiddist í júlí og missti þar af leiðandi af seinni hluta Pepsi Max deildarinnar.

Chanté, sem nú er búsett á Íslandi , hefur hafið æfingar að nýju af krafti og fer til móts við landslið Guyana í lok október.
Athugasemdir
banner
banner