Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. október 2021 10:00
Elvar Geir Magnússon
Spilar meira fyrir landsliðið en félagsliðið
Aaron Ramsey.
Aaron Ramsey.
Mynd: Getty Images
Juventus er ekki að ná því besta fram í Aaron Ramsey en síðan í mars hefur leikmaðurinn spilað meira fyrir landslið Wales en félagslið sitt.

Juventus reyndi að selja Ramsey í sumar en fann ekki félag sem var tilbúið að ganga að launakröfum hans.

Hann kom til Juve á frjálsri sölu frá Arsenal í júlí 2019 og samningurinn er til sumarsins 2023.

Hann hefur alls spilað 69 mótsleiki í treyju Juventus, skorað sex mörk og átt sex stoðsendingar.

Staða hans hefur versnað undanfarna mánuði og tölfræðifréttamaðurinn Enrico Turcato segir að síðan í mars hafi hann spilað meira fyrir land en lið.

Ramsey var með velska liðinu á EM 2020, spilaði 447 mínútur með Wales í sex leikjum samanborið við 378 spilmínútur fyrir Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner