Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. nóvember 2019 13:13
Elvar Geir Magnússon
Böddi löpp greip tækifærið og er í liði umferðarinnar
Böðvar í sviðsljósinu.
Böðvar í sviðsljósinu.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn í stöðu vinstri bakvarðar er Jagiellonia Bialystok lagði LKS Lodz 2-0 í pólsku úrvalsdeildinni.

Tækifærin hafa verið af skornum skammti hjá Böðvari og hann lýsti yfir áhyggjum sínum í viðtali nýlega.

Hann fékk langþráð tækifæri á sunnudag og nýtti það frábærlega. Hann var valinn í úrvalslið umferðarinnar í deildinni.

Það er jöfn og spennandi keppni í gangi í Póllandi. Að loknum fjórtán umferðum Jagiellonia Bialystok í sjöunda sæti en er þó aðeins þremur stigum frá toppsætinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner