Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. nóvember 2019 16:06
Elvar Geir Magnússon
De Ligt ekki með á morgun
De Ligt ætti að vera klár fyrir helgina.
De Ligt ætti að vera klár fyrir helgina.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn ungi Matthijs de Ligt verður ekki með Juventus í Meistaradeildarleiknum gegn Lokomotiv Moskvu á morgun vegna ökklameiðsla.

De Ligt varð fyrir meiðslum í 1-0 sigrinum gegn Torino á laugardaginn en hann skoraði sigurmark leiksins.

Meiðslin eru minniháttar og hann ætti að vera klár í leikinn gegn AC Milan um helgina.

Það er enn talsvert í Giorgio Chiellini sem reif liðþófa í hné í ágúst. Þá eru Emre Can og Mario Mandzukic ekki á Evrópulista Juventus og því ekki í hópnum á morgun.

Atletico Madrid og Juventus eru á toppi D-riðils Meistaradeildarinnar með 7 stig eftir þrjár umferðir. Lokomotiv Moskva er með þrjú stig og Bayer Leverkusen á botninum stigalaust.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner