Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson fóru á sinn gamla heimavöll, Fratton Park, með lærisveina sína í Southend United í kvöld.
Campbell lék með Portsmouth frá 2006 til 2009 og var Hermann hjá félaginu frá 2007 til 2012. Þeir stýra núna Southend saman og mættu þeir Portsmouth í kvöld.
Campbell lék með Portsmouth frá 2006 til 2009 og var Hermann hjá félaginu frá 2007 til 2012. Þeir stýra núna Southend saman og mættu þeir Portsmouth í kvöld.
Portsmouth komst yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks og var staðan 1-0 í hálfleik. Portsmouth komst svo í 2-0 snemma í seinni hálfleiknum.
Brandon Goodship minnkaði muninn fyrir Southend á 69. mínútu, en lengra komst Southend ekki.
Portsmouth skoraði úr vítaspyrnu á 80. mínútu og bætti við sínu fjórða marki á 84. mínútu. Lokatölur 4-1 fyrir Portsmouth.
Portsmouth er í 13. sæti, en Southend er í næst neðsta sæti með aðeins fimm stig. Campbell og Hermann hafa verk að vinna.
Athugasemdir