Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. nóvember 2019 19:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrirliðabandið tekið af Xhaka - Aubameyang nýr fyrirliði
Xhaka missir fyrirliðabandið til Aubameyang.
Xhaka missir fyrirliðabandið til Aubameyang.
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Arsenal, hefur staðfest það að Granit Xhaka er ekki lengur fyrirliði Arsenal.

Xhaka hefur ekki leikið fyrir Arsenal frá því hann gekk af velli gegn Crystal Palace þann 27. október.

Staðan var 2-2 og Xhaka var lengi að ganga af velli. Þegar stuðningsmenn byrjuðu að baula á hann, þá brást hann reiður við, sendi merkjagjöf í átt að stúkunni og kallaði 'fokk off'. Hann reif sig svo úr treyjunni áður en hann óð beint inn í klefa.

Sóknarmaðurinn Pierre Emerick Aubameyang tekur við fyrirliðabandinu af Xhaka, sem var formlega gerður af fyrirliða í september.

Emery ráðlagði sig við leikmenn áður en hann gerði Xhaka að fyrirliða að sínum tíma.

Hvorki Xhaka né Aubameyang munu ferðast með Arsenal í leikinn gegn Vitoria Guimaraes í Evrópudeildinni á morgun.

Sjá einnig:
Xhaka ekki tekinn með til Portúgal
Athugasemdir
banner