Ensku félögin Manchester United og Tottenham eru sögð berjast um starfskrafta Andre Onana sem ver mark Ajax.
Ajax er sagt vera tilbúið að selja ef rétta tilboðið kemur. Spurs er sagt vilja losa Hugo Lloris áður en félagið snýr sér að Onana.
Ajax er sagt vera tilbúið að selja ef rétta tilboðið kemur. Spurs er sagt vilja losa Hugo Lloris áður en félagið snýr sér að Onana.
Spurs hefur sýnt mestan áhuga en PSG og United eru einnig að skoða markvörðinn sem hefur leikið vel með Ajax og vakið athygli fyrir frammistöðu sína í Meistaradeildinni.
Ajax er sagt vilja fá á bilinu 40-50 milljónir evra fyrir Onana sem mun að öllum líkindum verja mark Ajax gegn Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld.
Athugasemdir