Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. nóvember 2019 13:45
Elvar Geir Magnússon
Njósnarar Man Utd fylgjast með 17 ára leikmanni Inter
Lorenzo Pirola á æfingu Inter.
Lorenzo Pirola á æfingu Inter.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur sent njósnara til að fylgjast með sautján ára leikmanni Inter, varnarmanninum Lorenzo Pirola.

Manchester City hefur einnig augastað á leikmanninum en fulltrúar beggja félaga eru á HM U17 landsliða sem nú stendur yfir.

Pirola hefur leikið virkilega vel á mótinu til þessa og hjálpaði Ítalíu að komast í útsláttarkeppnina. Hann skoraði í 2-1 sigri gegn Paragvæ á sunnudag.

Pirola hefur enn ekki leikið fyrir aðallið Inter en er í miklum metum hjá félaginu sem ekki vill sleppa honum.

Varnarmaðurinn ungi var í úrvalsliði EM U17 landsliða.
Athugasemdir
banner
banner
banner