Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. nóvember 2020 16:40
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Tottenham í Búlgaríu: Hart og Kane byrja - Son á bekknum
Heung-Min Son.
Heung-Min Son.
Mynd: Getty Images
Tottenham tapaði óvænt fyrir Antwerp í Evrópudeildinni í síðustu viku og núna klukkan 17:55 mætir liðið Ludogorets Razgrad í Búlgaríu.

Ludogorets hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa en liðið er það langbesta í Búlgaríu og hefur unnið meistaratitilinn þar í landi níu ár í röð.

Tottenham er án Sergio Reguilon sem er veikur og þá eru Erik Lamela og Serge Aurier að glíma við smávægileg meiðsli og eru hvíldir.

Joe Hart er í marki Tottenham og Harry Kane er í byrjunarliðinu en ekki Heung-Min Son sem byrjar á bekknum.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi tvö lið eigast við í Evrópuleik.

Byrjunarlið Tottenham: Hart; Doherty, Alderweireld, Dier, Davies; Lo Celso, Winks, Sissoko; Bale, Kane, Lucas Moura.



Leikir dagsins í Evrópudeildinni:

EUROPA LEAGUE: Group A
17:55 Roma - Cluj
20:00 Young Boys - CSKA Sofia

EUROPA LEAGUE: Group B
17:55 Rapid - Dundalk
20:00 Arsenal - Molde (Stöð 2 Sport 2)

EUROPA LEAGUE: Group C
17:55 Slavia Prag - Nice
17:55 Hapoel Beer Sheva - Leverkusen

EUROPA LEAGUE: Group D
17:55 Benfica - Rangers
17:55 Lech Poznan - Standard Liege

EUROPA LEAGUE: Group E
17:55 Omonia - Granada CF
17:55 PAOK - PSV

EUROPA LEAGUE: Group F
17:55 Real Sociedad - AZ (Stöð 2 Sport 2)
17:55 Rijeka - Napoli

EUROPA LEAGUE: Group G
20:00 Leicester - Braga (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Zorya - AEK

EUROPA LEAGUE: Group H
20:00 Milan - Lille
20:00 Celtic - Sparta Prag

EUROPA LEAGUE: Group I
17:55 Sivasspor - Qarabag
20:00 Villarreal - Maccabi Tel Aviv

EUROPA LEAGUE: Group J
17:55 Ludogorets - Tottenham (Stöð 2 Sport 4)
20:00 Antwerp - LASK Linz

EUROPA LEAGUE: Group K
20:00 Feyenoord - CSKA
20:00 Dinamo Zagreb - Wolfsberger AC

EUROPA LEAGUE: Group L
20:00 Rauða stjarnan - Gent
20:00 Hoffenheim - Liberec
Athugasemdir
banner
banner