Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 14:27
Aksentije Milisic
Championship: McBurnie fór á kostum þegar Sheffield valtaði yfir Burnley
Frábær í dag.
Frábær í dag.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Sheffield United 5-2 Burnley
0-1 Manuel Benson ('17)
1-1 Iliman Ndiaye ('30)
1-2 Manuel Benson ('45)
2-2 Oliver McBurnie ('48)
3-2 Jack Robinson ('65)
4-2 Anel Ahmedhodzic ('69)
5-2 Oliver McBurnie ('74)


Fyrsta leik dagsins í Championship deildinni er lokið en þar mættust tvö efstu lið deildarinnar, Sheffield United og Burnley.

Gestirnir frá Burnley byrjuðu betur en þeir leiddu leikinn með einu marki gegn tveimur þegar flautað var til leikhlés. Manuel Benson gerði bæði mörk Burnley en þau komu eftir slæm mistök í vörn heimamanna.

Oliver McBurnie var allt í öllu í sóknarleik Sheffield í dag en hann jafnaði metin á 48. mínútu en heimamenn voru mjög öflugir í föstum leikatriðum.

Sheffield gerði sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk á níu mínútna kafla í síðari hálfleiknum og gekk gjörsamlega frá leiknum. Mörkin gátu orðið fleiri en vörnin hjá Burnley galopnaðist í síðari hálfleikum.

McBurnie skoraði tvö mörk, lagði upp eitt og sótti sér í gult spjald eins og honum einum er lagið áður en honum var skipt útaf.

Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á í stöðunni 2-2 á 59. mínútu leiksins.

Þetta var aðeins annar tapleikurinn hjá Burnley á tímabilinu en Sheffield er nú þremur stigum á eftir Burnley sem er ennþá á toppnum en Sheffield á einn leik til góða.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
2 Leicester 42 28 4 10 79 38 +41 88
3 Leeds 43 26 9 8 76 34 +42 87
4 Southampton 42 25 9 8 84 54 +30 84
5 West Brom 43 20 12 11 66 42 +24 72
6 Norwich 43 21 8 14 76 60 +16 71
7 Hull City 42 18 11 13 62 54 +8 65
8 Coventry 42 17 12 13 66 52 +14 63
9 Middlesbrough 43 18 9 16 61 56 +5 63
10 Preston NE 43 18 9 16 56 60 -4 63
11 Cardiff City 43 18 5 20 48 60 -12 59
12 Bristol City 43 16 10 17 50 46 +4 58
13 Sunderland 43 16 8 19 52 50 +2 56
14 Swansea 43 14 11 18 53 62 -9 53
15 Watford 43 12 16 15 59 58 +1 52
16 Millwall 43 13 11 19 42 55 -13 50
17 Blackburn 43 13 10 20 57 71 -14 49
18 Plymouth 43 12 12 19 58 66 -8 48
19 QPR 43 12 11 20 40 57 -17 47
20 Stoke City 43 12 11 20 41 60 -19 47
21 Birmingham 43 12 9 22 48 64 -16 45
22 Huddersfield 43 9 17 17 47 70 -23 44
23 Sheff Wed 43 12 8 23 36 67 -31 44
24 Rotherham 43 4 11 28 32 85 -53 23
Athugasemdir
banner
banner
banner