Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 05. nóvember 2022 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Leicester fór upp úr fallsæti og upp fyrir Everton
Mynd: Getty Images

Everton 0 - 2 Leicester City
0-1 Youri Tielemans ('45 )
0-2 Harvey Barnes ('86 )


Everton og Leicester áttust við í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leicester var í fallsæti fyrir leikinn en gat farið upp fyrir Everton með sigri.

Leicester liðið átti frábærann leik en fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós undir lok fyrri hálfleiks þegar Youri Tielemans negldi boltanum í netið með mögnuðu skoti fyrir utan vítateiginn.

Dominic Calvert-Lewin var nálægt því að jafna metin í upphafi síðari hálfleiks en Danny Ward varði frá honum.

Harvey Barnes gulltryggði svo sigurinn með marki undir lok leiksins.

James Maddison átti frábæran leik og lagði upp bæði mörkin. Hann hefði getað fullkomnað leik sinn með marki í síðari hálfleik en skot hans fór í stöngina.


Athugasemdir
banner
banner
banner