Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrrum aðstoðarmaður Benítez aðstoðar Emery
Rafa Benitez og Pako Ayestaran
Rafa Benitez og Pako Ayestaran
Mynd: Getty Images

Aston Villa er búið að ráða þjálfarateymið í kringum Unai Emery sem var ráðinn til félagsins á dögunum.


Pako Ayestaran mun vera aðstoðarþjálfari en hann var aðstoðarþjálfari Rafa Benitez til 11 ára, meðal annars hjá Liverpool.

Einnig eru það þjálfarinn Pablo Villanueva, kallaður Villa. Francisco Javier Garcia markmannsþjálfari, Antonio Rodriguez Saravia þjálfari, Mises de Hoyo styrktarþjálfari og Victor Manuel Manas sem mun sjá um að greina frammistöðu leikmanna í leikjum.

Allir hafa þeir unnið með Emery til lengri tíma og Francisco Garcia vann með Emiliano Martinez hjá Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner