Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 05. nóvember 2022 17:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haaland: Sjaldan verið jafn stressaður í lífinu
Mynd: EPA

Erling Haaland mætti dauðþreyttur í viðtal hjá Sky Sports eftir dramatískan sigur Manchester City í dag.


Haaland hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna meiðsla og byrjaði á bekknum í dag. Hann kom inn á sem varamaður og kom boltanum tvisvar í netið, fyrra skiptið var hann dæmdur rangstæður.

Í uppbótartíma fékk City vítaspyrnu þegar Kevin de Bruyne var felldur í teignum. Haaland steig á punktinn og skoraði. Hann segist sjaldan hafa verið jafn stressaður.

„Sjaldan verið jafn stressaður í lífinu. Hvað heldur þú? Víti á síðustu mínútunni, auðvitað er ég stressaður eins og allir myndu vera. Frábær tilfinning samt," sagði Haaland.


Athugasemdir
banner
banner