Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. nóvember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Marínó Axel framlengir við Grindavík
Lengjudeildin
Marinó Axel Helgason
Marinó Axel Helgason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marinó Axel Helgason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Grindavík sem gildir út tímabilið 2024. Marinó er 25 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril í Grindavík.


Hann er hægri bakvörður en hann hefur leikið 128 leiki með félaginu í deildar og bikarkeppni. Hann hefur skorað eitt mark.

„Ég er mjög ánægður með að vera búinn að endurnýja samning minn við Grindavík. Þetta er minn heimaklúbbur og mér líður rosalega vel hjá Grindavík,“ segir Marinó Axel.

. „Ég er mjög spenntur fyrir komandi keppnistímabili og finn fyrir miklum metnaði hjá nýrri stjórn. Ég hlakka til að byrja að vinna með nýju þjálfarateymi og trúi því að það sé skemmtilegt tímabil í vændum."

„Það er frábær tíðindi fyrir okkur að Marinó Axel verði áfram í Grindavík. Hann er frábær bakvörður og mikilvægur liðsmaður. Marinó hefur mikinn metnað og endurspeglar vel þau gildi sem við höldum í heiðri í Grindavík,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

„Knattspyrnudeild Grindavíkur lýsir mikilli ánægju með að einn af uppöldu leikmönnum félagsins hafi samið við félagið til næstu ára." Segir í tilkynningu félagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner