Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. desember 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Cardiff vill fá Mutch
Mutch fagnar marki með Cardiff.
Mutch fagnar marki með Cardiff.
Mynd: Getty Images
Cardiff vill fá miðjumanninn Jordon Mutch aftur í sínar raðir frá Crystal Palace þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Neil Warnock, stjóri Cardiff, vill bæta við leikmönnum í janúar fyrir fallbaráttuna sem er framundan.

Hinn 27 ára gamli Mutch fór frá Cardiff fyrir fjóru og hálfu ári en hann gæti nú gengið aftur í raðir félagsins.

Mutch er aftarlega í röðinni hjá Palace en hann hefur einungis leikið átján leiki með liðinu.

Mutch hefur verið í láni hjá Vancouver Whitecaps í MLS-deildinni en þeim lánssamningi er lokið og hann gæti nú farið aftur til Cardiff.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner