Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho hefur blásið á sögusagnir þess efnis að hann gæti verið á förum frá Liverpool.
Fabinho hefur einungis verið sex sinnum í byrjunarliði Liverpool síðan hann kom til félagsins frá Mónakó í sumar.
Frönsku meistararnir í PSG hafa áður sýnt Fabinho áhuga og hann hefur verið orðaður við félagaskipti þangað. Hann segist þó ekki vera að fara neitt.

„Ég heyrði að aþð séu einhverjar sögusagnir í fjölmiðlum en ég hef aldrei sagt að ég vilji yfirgefa Liverpool," sagði Fabinho.
„Ég vissi að ég þyrfti þolinmæði til að bíða eftir mínu tækifæri. Ég er ánægður hjá Liverpool. Það er engin ástæða til að fara."
Athugasemdir