Kjartan Henry Finnbogason, framherji Ferencvaros, skoraði tvívegis í 4-0 sigri á Senyo Carnifex í ungverska bikarnum í dag.
Kjartan Henry skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu á 50. mínútu og á 63. mínútu bætti hann öðru marki við. Hann fór síðan af velli skömmu síðar.
Kjartan Henry skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu á 50. mínútu og á 63. mínútu bætti hann öðru marki við. Hann fór síðan af velli skömmu síðar.
Samtals hefur Kjartan nú skorað sex mörk í þremur leikjum í ungverska bikarnum í vetur.
Tækifærin hafa verið færri í úrvalsdeildinni en þar hefur Kjartan aldrei verið í byrjunarliðinu á þessu tímabili.
Kjartan Henry kom til Ferencvaros í sumar eftir dvöl hjá Horsens í Danmörku undanfarin ár.
Athugasemdir