mið 05. desember 2018 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Meiðsli Rob Holding og Joe Gomez gætu verið alvarleg
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp og Unai Emery, stjórar Liverpool og Arsenal, voru ekki bjartsýnir eftir að miðverðir þeirra meiddust í leikjum kvöldsins í enska boltanum.

Holding meiddist í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Manchester United á Old Trafford á meðan Gomez þurfti að fara af velli snemma leiks í 1-3 sigri gegn Burnley.

„Læknarnir segja að meiðslin hans Rob Holding gætu verið alvarleg, hann meiddist á hné. Meiðslin hans Ramsey virðast vera smávægileg," sagði Emery eftir jafntefli Arsenal.

„Joe (Gomez) er meiddur og líklega meira heldur en smá. Við þurfum að bíða til morguns, hann fékk að fara heim að hvíla sig," sagði Klopp um Gomez sem meiddist á ökkla.

Miðverðirnir ungu hafa verið gríðarlega mikilvægir sínum liðum á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner