Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 05. desember 2018 23:31
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Skoruðum fjögur mörk en gerðum jafntefli
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho var svekktur með mistök leikmanna sinna í 2-2 jafntefli gegn Arsenal á Old Trafford fyrr í kvöld.

Öll mörk leiksins komu eftir misskelfileg varnarmistök og var Mourinho sérstaklega ósáttur með annað mark Arsenal, þegar Marcos Rojo gaf boltann á Alexandre Lacazette og tæklaði hann svo í eigið net.

„Við vorum búnir að ná stjórn á leiknum þegar við skoruðum annað mark Arsenal fyrir þá," sagði Mourinho að leikslokum.

„Við skoruðum fjögur mörk en gerðum 2-2 jafntefli! Eins og vanalega þá gerðum við mistök sem kostuðu okkur en ég er ánægður með baráttuandann.

„Strákarnir börðust eins og ljón og lögðu allt í sölurnar, en þegar boltinn barst á okkar vallarþriðjung þá fannst stressið í mönnum alla leið á bekkinn."


Mourinho er einnig ósáttur með nýtingu sinna manna í upphafi leikja og segist þurfa meiri tíma til að koma Rauðu djöflunum á hærri stall.

„Við fáum alltaf fyrsta marktækifæri leiksins en hversu oft skorum við úr því og byggjum á því? Það er mjög, mjög sjaldgæft.

„Baráttuandinn var Manchester United en það vantaði uppá gæðin. Það er ekki hægt að bera okkur saman við lið sem innihélt Roy Keane, Ruud van Nistelrooy og Nemanja Vidic. Við þurfum meiri tíma."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner