Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. desember 2018 22:31
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Denis Suarez gerði tvö fyrir Barca - Celta úr leik
Denis Suarez skoraði tvö fyrir Barca.
Denis Suarez skoraði tvö fyrir Barca.
Mynd: Getty Images
Ekambi setti fernu gegn Almeria.
Ekambi setti fernu gegn Almeria.
Mynd: Getty Images
Celta Vigo er dottið úr spænska bikarnum eftir 2-0 tap gegn Real Sociedad í kvöld.

Miguel Oyarzabal og Adnan Januzaj gerðu mörk heimamanna í leiknum eftir 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á útivelli.

Varalið Barcelona lenti þá ekki í vandræðum gegn Leonesa þar sem Denis Suarez gerði tvennu og þá tókst Sevilla rétt svo að merja Villanovense 1-0 þrátt fyrir meira en 30 marktilraunir á heimavelli.

Karl Ekambi skoraði fernu og Carlos Bacca tvennu er Villarreal valtaði yfir Almeria 8-0 eftir 3-3 jafntefli í fyrri leiknum. Real Valladolid komst einnig áfram eftir sigur gegn Mallorca.

Real Sociedad 2 - 0 Celta Vigo (3-1 samanlagt)
1-0 Miguel Oyarzabal ('10)
2-0 Adnan Januzaj ('27)

Barcelona 4 - 1 Leonesa (5-1 samanlagt)
1-0 Munir El Haddadi ('18)
2-0 Denis Suarez ('26)
3-0 Malcom ('43)
3-1 J. Sene ('54)
4-1 Denis Suarez ('70)

Sevilla 1 - 0 Villanovense (1-0 samanlagt)
1-0 Andre Silva ('49)

Villarreal 8 - 0 Almeria (11-3 samanlagt)
1-0 Karl Ekambi ('23)
2-0 Karl Ekambi ('30)
3-0 Karl Ekambi ('36)
4-0 Carlos Bacca ('45)
5-0 Karl Ekambi ('47)
6-0 Gerard Moreno ('67)
7-0 Carlos Bacca ('83, víti)
8-0 Raba ('89)

Real Valladolid 2 - 1 Mallorca (4-2 samanlagt)
0-1 A. Prats ('48)
1-1 O. Plano ('49)
2-1 D. Verde ('88)
Athugasemdir
banner