Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 05. desember 2018 12:00
Magnús Már Einarsson
Welbeck fær að fara frítt frá Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal ætlar ekki að bjóða Danny Welbeck nýjan samning þegar núverandi samningur hans rennur út í júní á næsta ári. Sky Sports segir frá þessu í dag.

Hinn 28 ára gamli Welbeck meiddist mjög illa á ökkla í síðasta mánuði og verður væntanlega ekki meira með á tímabilinu.

Welbeck hefur því líklega spilað sinn síðasta leik með Arsenal.

Welbeck þarf að finna sér nýtt félag næsta sumar líkt og miðjumaðurinn Aaron Ramsey sem gerir ekki nýjan samning við Arsenal.

Samtals hefur Welbeck spilað 126 leiki með Arsenal síðan liðið keypti hann frá Manchester United árið 2014 á 15 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner