Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. desember 2020 23:15
Victor Pálsson
Býst við að Özil sé búinn að spila sinn síðasta leik
Mynd: Getty Images
Tími Mesut Özil hjá Arsenal er liðinn að mati Alan Smith sem lék eitt sinn með félaginu við góðan orðstír.

Özil var ekki valinn í leikmannahóp Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og er alls ekki inni í myndinni hjá Mikel Arteta, stjóra liðsins.

Margir kalla eftir því að Özil eigi að fá tækifærið á ný en sóknarleikur enska liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska í síðustu leikjum.

„Þetta snýst allt um að koma boltanum á Pierre Emerick Aubameyang sem fyrst og þá sem geta gefið þá sendingu strax. Þess vegna er rætt um Özil," sagði Smith.

„Arsenal reyndi að fá skapandi leikmann í glugganum - Houssem Aouar - en þeim tókst ekki að koma honum inn ásamt Thomas Partey."

„Sé ég Özil snúa aftur í liðið? Nei ég sé það ekki gerast. Það hefur allt of mikið gerst á bakvið tjöldin svo Mikel Arteta geti treyst honum á ný. Hann telur Özil hafa brugðist sér með því að vera ekki reiðubúinn þegar hann taldi það vera raunin."

„Ef þú treystir ekki leikmanni þá er það stórt vandamál. Það var ristastór ákvörðun að sparka honum úr hópnum og ég sé hann ekki fá annað tækifæri."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner