Tveir leikmenn hafa skrifað undir nýja samninga við KF og munu leika áfram með félaginu á næstu leiktíð.
Leikmennirnir eru þeir Sævar Gylfason og Ljubomir Delic. Sævar er fæddur árið 2000 og Ljubomir árið 1995.
Í færslu KF á Twitter kemur fram að Ljubomir sé sestur að á Ólafsfirði ásamt eiginkonu sinni. Hann kom fyrst til KF árið 2017 og hefur leikið 74 leiki með liðinu og skorað tuttugu mörk.

KF kom mörgum spekingum á óvart í sumar og endaði í sjötta sæti 2. deildar sem nýliði í deildinni. Liðinu var spáð botnsæti deildarinnar fyrir tímabilið.
Byrjum helgina með stæl í jólastuði!
— KF (@KFthunders) December 4, 2020
Sævar Gylfason og Ljubomir Delic hafa skrifað undir nýjann samning við félagið!
Sævar Gylfason er fæddur 2000 og kom hann til KF árið 2019 og hóf sinn meistaraflokksferil. Sævar hefur spilað 35 leiki og skorað í þeim 5 mörk fyrir KF. pic.twitter.com/d0NnQSWmmE
Athugasemdir