Union Berlin 2 - 2 St. Gilloise
1-0 Sheraldo Becker ('15)
2-0 Anthony Ujah ('37)
2-1 Aron Sigurðarson ('53)
2-2 Sigurd Haugen ('86)
1-0 Sheraldo Becker ('15)
2-0 Anthony Ujah ('37)
2-1 Aron Sigurðarson ('53)
2-2 Sigurd Haugen ('86)
Aron Sigurðarson spilaði sinn fyrsta leik fyrir belgíska B-deildarfélagið Royale Union Saint-Gilloise í dag.
St. Gilloise mætti þar þýska efstudeildarfélaginu Union Berlin og komust Þjóðverjarnir í tveggja marka forystu fyrir leikhlé. Sheraldo Becker og Anthony Ujah gerðu mörk heimamanna.
Aron minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik og náði Sigurd Haugen að jafna leikinn á lokamínútunum.
Aron hefur verið funheitur að undanförnu og var frábært gengi hans í norska boltanum fyrir áramót launað með samningi í Belgíu.
Hann þarf að halda sér heitum í vikunni því næstu helgi á St. Gilloise mikilvægan toppslag við Leuven í belgísku B-deildinni.
Athugasemdir