Hinn efnilegi Reiss Nelson gerði eina mark leiksins er Arsenal sló Leeds úr leik í enska bikarnum fyrr í kvöld.
Liðin mættust á Emirates og var staðan markalaus í leikhlé. Gestirnir frá Leeds gjörsamlega stjórnuðu fyrri hálfleiknum og voru óheppnir að skora ekki.
Emiliano Martinez átti stórleik á milli stanga Arsenal og var valinn maður leiksins í einkunnagjöf Sky Sports að leikslokum.
Illan Meslier, ungur markvörður Leeds, átti einnig góðan leik og fékk jafnháa einkunn og kollegi sinn. Þeir fengu báðir 8 og var Kalvin Phillips, miðjumaður Leeds, eini útispilandi leikmaðurinn sem náði þeirri einkunn.
Flestir leikmenn vallarins fengu 7 í einkunn. Rob Holding var verstur og fékk 5 á meðan Matteo Guendouzi, Granit Xhaka og Sead Kolasinac fengu 6.
Arsenal: Martinez (8), Sokratis (7), Luiz (7), Holding (5), Kolasinac (6), Xhaka (6), Guendouzi (6), Nelson (7), Ozil (7), Pepe (7), Lacazette (7)
Varamenn: Martinelli (7), Willock (6)
Leeds United: Meslier (8), Ayling (7), White (7), Berardi (7), Douglas (6), Phillips (8), Harrison (7), Gotts (7), Klich (6), Alioski (7), Bamford (7)
Varamenn: Dallas (7), Costa (6), Stevens (6)
Athugasemdir