Everton og West Ham eru meðal áhugasamra félaga sem vilja tryggja sér þjónustu franska miðjumannsins Steven Nzonzi.
Nzonzi er 31 árs gamall og leikur fyrir Galatasaray á lánssamningi frá Roma. Hann býr yfir sex ára reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir þrjú ár hjá Blackburn og þrjú ár hjá Stoke City.
Hann skipti til Sevilla 2015 og var meðal bestu leikmanna liðsins. Arsenal sýndi honum áhuga en Sevilla hafnaði kauptilboðinu og seldi hann til Roma nokkrum árum síðar, fyrir rétt tæpar 30 milljónir evra.
Nzonzi fann sig ekki hjá Roma og var því lánaður til Tyrklands. Miðjumaðurinn vill ekki spila í tyrkneska boltanum lengur og er talinn vilja snúa aftur í ensku úrvalsdeildina þrátt fyrir áhuga frá Lyon.
Athugasemdir