Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. janúar 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gefa 1000 dollara fyrir hvert skorað mark í næstu umferð
Mynd: Getty Images
Ástralski fjölmiðillinn Optus Sport ætlar að leggja yfirvöldum í Ástralíu lið við að berjast gegn þeim gífurlegu eldum sem ríða eftir landið þessa dagana.

Optus ætlar að gefa 1000 dollara fyrir hvert mark sem verður skorað í næstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fer fram 11-13. október.

1000 ástralskir dollarar samsvara um 85 þúsund íslenskum krónum. Að meðaltali eru skoruð rétt tæplega 30 mörk í hverri umferð í enska boltanum og ætti Optus því að ná að safna um tveimur og hálfri milljón króna fyrir baráttuna við skógareldana.

Stuðningur við Ástralíu gegn skógareldunum hefur komið úr ýmsum áttum en knattspyrnuheimurinn hefur ekki brugðist sérstaklega við þessum hræðilega atburði sem hefur óbein áhrif á líf allra jarðarbúa.
Athugasemdir
banner
banner
banner