Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 06. janúar 2020 17:15
Magnús Már Einarsson
Liverpool vill framlengja við Chirivella
Mynd: Getty Images
Liverpool er að íhuga að bjóða spænska miðjumanninum Pedro Chirivella nýjan samning.

Hinn 22 ára gamli Chirivella var í byrjunarliðinu gegn Everton í enska bikarnum í gær og átti góðan leik í 1-0 sigri.

Chirivella hefur spilað fjóra leiki með aðalliði Liverpool á tímabilinu en hann verður samningslaus í sumar.

Chirivella kom til Liverpool frá Valencia árið 2013 og hefur síðan þá leikið með unglinga og varaliðum Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner