Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, hefur skipt um umboðsmann.
Nýr umboðsmaður hans er ofur umboðsmaðurinn Mino Raiola sem hefur vakið athygli í gegnum tíðina.
Í gegnum tíðina hefur Raiola meðal annars verið með Paul Pogba, Romelu Lukaku og Zlatan Ibrahimovic á sínum snærum.

Hinn 27 ára gamli Lingard hefur legið undir gríðarlegri gagnrýni en hann náði hvorki að leggja upp mark né skora í ensku úrvalsdeildinni árið 2019.
Möguleiki er á að hann fari frá Manchester United í þessum mánuði eða næsta sumar og þá mun Raiola sjá um hans mál.
Athugasemdir