Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. janúar 2020 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Southampton undirbýr sig fyrir Leicester
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Southampton heimsækir lærisveina Brendan Rodgers til Leicester í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Liðin mættust síðast á St. Mary's, heimavelli Southampton, og skoruðu gestirnir níu mörk í þeim leik. Lokatölur urðu 0-9 sem er stærsti sigur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Gengi Southampton var skelfilegt á upphafi tímabils en það snarbatnaði í desember og er liðið búið að leggja Chelsea og Tottenham að velli á síðustu vikum.

Áfallastreituröskunin er þó enn til staðar eftir níu marka tap á heimavelli og birti Twitter aðgangur félagsins skemmtilegt myndband þar sem verið er að undirbúa sig fyrir vikuna í netheimum.

Í myndbandinu er sá sem stjórnar Twitter aðgangi Southampton að velja orð og frasa sem forritið á að hundsa.

'9-0', '0-9', 'haha nine' og 'nine' eru meðal þess sem reikningur Southampton mun hundsa sjálfkrafa næstu vikuna.

Myndbandið er hægt að sjá hér að neðan en þar sést hvernig 'welcome to Liverpool' er þegar á listanum yfir frasa til að hundsa. Það hefur verið mikið grín gert af því að Liverpool hefur verið að kaupa bestu leikmenn Southampton undanfarin ár.

Adam Lallana, Sadio Mane, Dejan Lovren, Virgil van Dijk og Nathaniel Clyne voru allir keyptir frá Southampton. Þá er Alex Oxlade-Chamberlain alinn upp þar þrátt fyrir að hafa farið í gegnum Arsenal á leið sinni til Liverpool.


Athugasemdir
banner
banner
banner