Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. janúar 2020 14:15
Magnús Már Einarsson
Son staðráðinn í að læra af rauðu spjöldunum
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son segist vera ákveðinn í að læra af rauðu spjöldunum sem hann fékk árið 2019.

Son fékk þrjú rauð spjöld á síðasta ári, síðast fyrir að sparka í Antonio Rudiger varnarmann Chelsea.

Son sneri aftur gegn Middlesbrough um helgina eftir að hafa verið í þriggja leikja banni yfir jólahátíðarnar.

„Þetta er búið og ég vil ekki tala um þetta. Ég einbeiti mér að því sem er framundan, það er mikilvægast," sagði Son eftir leikinn í gær.

„Ég er að reyna að læra af þessu, þrjú rauð spjöld er ekki eitthvað sem ég vildi. Þetta er ekki eitthvað sem ég bjóst við, þrjú rauð spjöld voru mjög sársaukafull. Ég ætla að reyna að læra af þessu."
Athugasemdir
banner
banner
banner