Manchester City hefur staðfest að þrír aðilar til viðbótar hjá félaginu hafi greinst með kórónuveirua.
Um er að ræða markvörðinn reynda Scott Carson, miðjumanninn unga Cole Palmer og einn starfsmann félagsins.
Áður höfðu fleiri greinst smitaðir hjá Manchester City, þar á meðal Kyle Walker, Gabriel Jesus og Ederson.

Manchester City lokaði æfingasvæði sínu timabundið í síðustu viku og þá var leik liðsins gegn Everton frestað.
Um síðustu helgi vann Manchester City hins vegar Chelsea á útivelli og í kvöld mætir liðið Manchester United í undanúrslitum enska deildabikarsins.
Athugasemdir