Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 06. janúar 2023 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dembele ánægður hjá Barcelona - „Ég er góður hérna"
Mynd: EPA

Ousmane Dembele leikmaður Barcelona hefur verið orðaður við PSG en Joan Laporta forseti félagsins segir að hann sé alls ekki til sölu.


Dembele var lengi vel í sumar ekki á þeim buxunum að skrifa undir nýjan samning við spænska félagið en sá samningur hefði runnið út næsta sumar.

Hann skrifaði loks undir samning og segist vera ánægður hjá félaginu.

„Ég skrifaði undir nýjan samning hjá Barcelona fyrir fjórum mánuðum og ég er ánægður hér, ég vil halda áfram að bæta mig hjá Barcelona. Ég er góður hérna, ég er ánægður hjá Barcelona, ég kann vel við lífið hér. Þjálfarinn hefur trú á mér og stjórnin líka," sagði Dembele.

Dembele hefur leikið 22 leiki á þessari leiktíð og er með 6 mörk og 7 stoðsendingar.


Athugasemdir
banner
banner
banner