Frank Lampard stjóri Everton er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir tap í Enska bikarnum í kvöld gegn Manchester United.
Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu tólf leikjum sínum en Lampard sá góða hluti í kvöld.
„Við þurfum að ná í úrslit og með svona frammistöðu koma þau fyrr en síðar, það er klárt," sagði Lampard.
Alex Iwobi hefur verið mikilvægur fyrir liðið en hann meiddist í upphafi síðari hálfleiks.
„VIð vonum að þetta sé ekki mjög slæmt. Lítur út fyrir að vera liðbönd á ökkla. Hann fer í myndatöku á morgun til að fá það staðfest," sagði Lampard.
Athugasemdir