Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. janúar 2023 14:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martial sá til þess að Butland kom ekki síðasta sumar
Jack Butland.
Jack Butland.
Mynd: Getty Images
Jack Butland gekk fyrr í dag í raðir Manchester United á láni frá Crystal Palace. Verður hann á láni hjá félaginu frá Crystal Palace út þessa leiktíð.

Man Utd vildi fá Butland síðasta sumar en endaði í staðinn á því að fá Martin Dubravka frá Newcastle. Hann er núna mættur aftur til Newcastle.

Anthony Martial, sóknarmaður United, sá til þess að Butland kom ekki til félagsins á þeim tímapunkti. Það er The Athletic sem greinir frá þessu.

Man Utd spilaði gegn Crystal Palace í æfingaleik síðasta sumar og þar handarbrotnaði Butland eftir skot frá Martial.

Því sneri United sér að Dubravka en núna er Butland mættur til félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner