Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. febrúar 2020 14:16
Elvar Geir Magnússon
Sautján ára stuðningsmaður í þriggja ára bann frá fótboltaleikjum
Mynd: Getty Images
Sautján ára stuðningsmaður Bournemouth hefur verið dæmdur í þriggja ára bann frá því að mæta á fótboltaleiki.

Hann var fundinn sekur um kynþáttaníð í köllum sínum úr stúkunni í leik Tottenham og Bournemouth í London þann 30. nóvember.

Sökum aldurs er nafn hans ekki gefið upp en auk þess að fá bannið þá þarf hann að greiða 55 punda sekt.

Hart er tekið á öllum fordómum í enska boltanum en mörg mál hafa komið upp í vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner